Harpa Björnsdóttir sýningarstjóri ræðir við gesti um sýninguna Vatnsberinn – fjall + kona sem nú stendur yfir í Ásmundarsafni.

Á sýningunni er þess minnst að á árinu 2015 eru 100 ár liðin frá því að konur fengu kosningarétt á Íslandi. Hin kunna höggmynd Ásmundar Sveinssonar, Vatnsberinn (1937), er þungamiðja og leiðarstef sýningarinnar. Á sýningunni eru önnur valin verk Ásmundar í samtali við verk þeirra Örnu Valsdóttur, Daníels Magnússonar, Kristínar Gunnlaugsdóttur, Níelsar Hafsteins, Ólafar Nordal, Ragnhildar Stefánsdóttur og Sigurðar Guðmundssonar. Sýningin stendur til 26. apríl 2015.
Listamannaspjallið hefst kl. 15, aðgangseyrir er kr. 1.400, ókeypis fyrir Menningarkortshafa, eldri borgara (70 ára og eldri) og 18 ára og yngri.

