Sölvi Helgason, eða Sólon Íslandus eins og hann kallaði sig líka, er tvímælalaust einn af áhugaverðustu alþýðulistamönnum sem þjóðin hefur alið, heillandi utangarðsmaður í lífshlaupi sínu og listsköpun.
Flakkari, fræðimaður og listamaður, en líka kenjóttur sérvitringur sem fór á svig við mannanna lög og reglur. Hann ferðaðist um landið með allt sitt hafurtask á bakinu, samanbrjótanlegt borð, bækur og málunargræjur, gisti á bæjum og skildi stundum eftir blómaflúraða mynd í þakkarskyni.
Harpa fékk úthlutun úr Myndlistarsjóði fyrir árið 2014 til að vinna að lífssögu Sölva Helgasonar.
Undanfarin ár hefur Harpa Björnsdóttir myndlistarmaður unnið í samstarfi við Safnasafnið að yfirgripsmikilli rannsókn á listferli og lífsferli hins þekkta alþýðulistamanns Sölva Helgasonar. Aldrei áður hefur hér á landi verið gerð ítarleg rannsókn á sjálfsprottnum [autodidact] listamanni og er því hér um frumkvöðlaverk að ræða í rannsóknum í íslenskri listasögu. Komið hafa fram áhugaverð gögn og ókunn listaverk, bæði hér á landi og í Danmörku. Sölvi er tvímælalaust einn af áhugaverðustu alþýðulistamönnum sem þjóðin hefur alið, heillandi utangarðsmaður, bæði í lífshlaupi sínu og listsköpun. Gæði mynda hans og listrænt vægi þeirra er óumdeilanlegt, og aðdáunarverð hin sjálfsprottna og þrautseiga sköpunarþrá þessa eirðarlausa förumanns. Stefnt er að ítarlegri, myndskreyttri bók um myndlistarmanninn Sölva Helgason, sem mun varpa ljósi á sérstakan myndheim hans og gefa almenningi hugmynd um þann mikla fjársjóð sem verk Sölva eru í alþýðumenningu Íslands og sjónlistaarfi
