Harpa hefur um árabil kennt myndlist, bæði börnum og fullorðnum. Hún hefur lagt sérstaka rækt við vatnslitamálun og kennt hana á námskeiðum hjá Mími og á eigin vegum. Margir nemenda hennar hafa haldið áfram á listabrautinni og komið til hennar á námskeið ár eftir ár.
Harpa hefur einnig starfað sem sérkennari og myndmenntakennari í sérskólum og almennum grunnskólum og í Listaháskólanum. Þá hefur hún skipulagt sjónþing og ritþing um myndlistarmenn og rithöfunda og haldið fjölmarga fyrirlestra um myndlist, myndlistarmenn, gildi alþýðulistar, heimspeki listarinnar og fleira.
Í tengslum við sýningarstjórnun hefur hún lagst í heimildavinnu og skrif um lífandi og liðna myndlistarmenn og haldið til haga merkilegum fróðleik um list þeirra og ævistarf.
Um þessar mundir vinnur Harpa að bók um Sölva Helgason, líf hans og myndlist.