Harpa Björnsdóttir er myndlistarmaður sem hefur iðulega fengist við orðið í verkum sínum. Hún hefur gefið út tvær ljóðabækur og ljóðmyndir, Vertu ský (1989) og einyrkja (2007).
Form, litur, texti og samspil þessara þátta hafa iðulega sett svip sinn á verk Hörpu. Í gegnum árin hefur hún mótað persónulegt táknmál, oft út frá sammannlegum reynsluheimi. Hún fjallar í verkum sinum um ímyndir, samskipti kynjanna, um hugmyndir okkar um listina, og listamanninn, um náttúruna, endurtekninguna, fegurðina og sakleysið og reynir iðulega að vekja spurningar um hina eilífi hringrás og tvíeðli hlutanna.




